Öryggi og meðferð gagna.
Þið eruð að fela okkur það sem fyrirtækið má síst missa. Hér stendur hvar gögnin eru geymd, hver hefur aðgang að þeim og hvað verður um þau.
Hvar gögnin eru geymd.
Gögn fyrirtækisins eru geymd í gagnaveri innan Evrópska efnahagssvæðisins. Þau eru dulkóðuð bæði í flutningi og í geymslu.
Þetta á við um það sem þið setjið inn og það sem gáttin sækir úr kerfunum ykkar: skjöl, fundargerðir, tölvupóst, rekstrargögn og það sem byggist upp í þekkingargrunninum.
Gervigreindarvinnslan fer fram utan EES.
Gögnin eru geymd innan EES, en sjálf gervigreindarvinnslan fer fram hjá undirvinnsluaðila utan svæðisins. Þegar spurningu er svarað fer það sem svarið byggir á til hans til vinnslu.
Ef það gengur ekki upp hjá ykkur er betra að vita það strax, áður en nokkuð er tengt.
Við gerum vinnslusamning (DPA) og veitum yfirlit yfir alla undirvinnsluaðila sem koma að þjónustunni.
Gögnin þjálfa engin líkön.
Gögn fyrirtækisins eru aldrei notuð til að þjálfa gervigreindarlíkön, hvorki okkar né annarra. Það sem þið setjið inn er notað til að svara ykkur og til einskis annars.
Gögn eins fyrirtækis fara aldrei inn í svör hjá öðru.
Aðgangur er stilltur með ykkur, og gögnin eru áfram ykkar.
Við stillum með ykkur hvaða kerfi eru tengd við gáttina og hverjir innan fyrirtækisins hafa aðgang að henni. Tenging sem þið viljið ekki er einfaldlega ekki sett upp.
Gögnin eru eign fyrirtækisins, ekki okkar. Þið getið fengið þau afhent eða látið eyða þeim hvenær sem er, og það gildir líka um það sem hefur byggst upp í þekkingargrunninum á meðan á samstarfinu stóð.
Hvað gervigreindin má.
Gervigreindin sér það sama og sá sem spyr
Aðgangi er stýrt í gagnagrunninum sjálfum. Hver fær aðeins svör úr gögnum sem hann hefur aðgang að, líka þegar spurt er úr Claude eða ChatGPT.
Gervigreindin vinnur innan marka
Hún getur aðeins gert það sem kerfið leyfir henni. Hún getur ekki tæmt síður í þekkingargrunninum, og tillögur hennar verða ekki að verkefnum fyrr en starfsmaður samþykkir þær.
Allt er rakið
Hvert svar vísar í heimild. Hver breyting er vistuð sem útgáfa sem má endurheimta og merkt þeim sem hún var gerð fyrir, líka þegar gervigreindin skrifaði hana.
Spurningar um meðferð gagna?
Nánara öryggisyfirlit sendum við á beiðni. Ef lögfræðingurinn ykkar eða tæknistjórinn vill fara yfir þetta tökum við það samtal áður en nokkuð er tengt.