Forsíða

Um Cervo.

Cervo er þjónusta sem við rekum fyrir ykkur. Þið vinnið því með fólki, og þá er sanngjarnt að vita hverjum.

Kerfið varð til af því að mig vantaði það sjálfan.

Halldór Kárason, stofnandi Cervo

Ég byggði fyrstu útgáfuna fyrir sjálfan mig og mína vinnu, þar sem skjölin lágu úti um allt: greiningar, vísindagreinar, áætlanir og gögn í ólíkum kerfum. Mig vantaði einn stað þar sem þekkingin kæmi saman og gervigreindin gæti auðveldlega unnið úr henni, í stað þess að ég væri sífellt að leita að því.

Þegar verkefnin bættust við breyttist þetta í annað. Það sem var ákveðið og klárað skilaði sér sjálft inn í þekkingargrunninn, og ég gat opnað gáttina og séð stöðuna eins og hún var þann daginn. Ég þurfti ekki lengur að taka hana saman.

Þá varð ljóst að vandamálið er ekki mitt eitt. Fyrirtæki vita meira en þau ná að halda utanum, og þegar fólk skiptir um starf fer þekkingin með því.

Halldór Kárason, PhD Stofnandi halldor@cervo.is

Bakgrunnur.

Ég er með doktorspróf í tölvuverkfræði frá Háskólanum í Salerno á Ítalíu. Í doktorsverkefninu smíðaði ég tauganet sem áætla krafta í líkamanum út frá skynjaragögnum. Líkönin voru líka látin taka mið af fyrirliggjandi þekkingu, svo sem eðlisfræðilögmálum, svo niðurstöðurnar byggðu bæði á gögnunum og á því sem vitað er fyrirfram um líkamann.

Ég hef unnið mikið með gervigreind og gagnavinnslu undanfarin ár og lært hvað líkön geta gert vel og hvar þau geta brugðist. Þess vegna höfum við byggt Cervo þannig frá upphafi að hægt sé að rekja hvaðan svörin koma. Þau vísa í heimildir og þegar tölur koma við sögu eru þær unnar beint úr gögnunum.

Hvernig við vinnum.

Uppsetning og rekstur

Við kortleggjum hvar þekkingin býr hjá ykkur, byggjum tengingarnar við kerfin sem þið notið nú þegar og smíðum það sem verklagið kallar á. Eftir það sjáum við um öryggi, uppfærslur og breytingar eftir því sem reksturinn þróast.

Unnið í áföngum

Grunnurinn fer í gagnið innan fárra daga. Aðlögunin er svo unnin í afmörkuðum áföngum, og þið prófið hvern áfanga í ykkar eigin vinnu áður en sá næsti tekur við.

Við erum ekki ráðgjafarfyrirtæki

Hver áfangi skilar sér sem hluti af kerfinu sem þið vinnið í, og þegar honum er lokið er hann kominn í vinnuna hjá ykkur.

Hvar gögnin eru geymd og hvað gervigreindin má

Nafnið.

Cervo þýðir hjörtur á ítölsku. Við berum það fram SER-vo, eins og latneska orðið servō, sem þýðir að geyma, varðveita og gæta.

Segðu okkur hvernig þið vinnið.

Í stuttri kynningu sýnum við gáttina með raunverulegu dæmi og förum yfir hvað mætti smíða utan um ykkar verklag. Við sleppum stöðluðu sölukynningunni.

Bókaðu kynningu halldor@cervo.is