Gervigreind sem þekkir fyrirtækið og vinnur verkin.

Cervo sér um endurtekin verk úr gögnum, skjölum og ákvörðunum fyrirtækisins á tilsettum tíma og svarar spurningum ykkar á íslensku. Verkin eru sett upp fyrir hvert fyrirtæki, hvert þeirra vísar í heimild og það sem skiptir máli bíður samþykkis.

Tengist kerfunum sem þið notið nú þegar, bókhaldi, vefverslun, tölvupósti og skjölum, og um 50 opinberum gagnaveitum: Skattinum, Hagstofu Íslands, Seðlabankanum, Kauphöllinni og fleirum.

Cervo Sýnidæmi

Endurtekið verk · daglega kl. 06:00

Pöntunardrög bíða samþykkis

Svarta ullarpeysan klárast eftir um níu daga. Afgreiðslutími birgjans er þrjár vikur, svo ég hef sett upp pöntunardrög.

ShopifyInnkaup (gagnasafn)

Fundargerð vistuð · þriðjudagur kl. 15:40

5 verkefni bíða samþykkis

Þrjár ákvarðanir og fimm verkefni úr stöðufundinum. Verkefnin eru sett upp með ábyrgðaraðilum og tvö þeirra eru með frest á föstudag.

Fundargerð 21. okt.Verkefni

Endurtekið verk · 1. hvers mánaðar kl. 06:00

16 tölur úr heimildum · 2 reiknaðar · 0 óstaðfestar

Tveir af átta samkeppnisaðilum skiluðu ársreikningi í október. Velta beggja jókst, en framlegð annars dróst saman um þrjú prósentustig.

SkatturinnÁrsreikningaskrá

Skrifaðu fréttabréf um nýju haustvörurnar í okkar stíl.

Drögin eru tilbúin í sniðmáti fréttabréfsins. Þau byggja á vörunum sem seldust best í september og orðalaginu úr síðustu þremur fréttabréfum.

KlaviyoShopifySniðmát fréttabréfs

Endurtekið verk · mánudagur kl. 07:00

212 færslur úr heimildum · 4 reiknaðar · 0 óstaðfestar

Sölugreining viku 43 er tilbúin. Salan var 6% yfir meðaltali síðustu átta vikna, mest í vefverslun. Tveir stærstu viðskiptavinirnir pöntuðu minna en venjulega.

Sölugreining, vika 43.pdfBókhaldVefverslun

Hvað ákváðum við um verðstefnu á stjórnarfundi 2023?

Verð voru lækkuð um 8% í mars 2023 til að verja markaðshlutdeild gegn nýjum samkeppnisaðila.

Fundargerð stjórnar2023-03-14

Cervo á einni mínútu

Fylgir frá fyrsta degi: þekkingargrunnur, svör með heimild, verkefni, gögn og greiningar, skjöl og markaðsefni, ársreikningar og verðmat.
Myndbandið í texta
  1. Þekkingargrunnur. Skjöl eru dregin inn, ársreikningur og fundargerð stjórnar, og síða fyrirtækisins byggist upp af sjálfu sér, með skráningu úr fyrirtækjaskrá: kennitala, tengiliðir, minnispunktar og saga breytinga, sem má taka til baka. Mánuði síðar bætist ný fundargerð við sömu síðu og tengist þeim síðum sem hún nefnir.
  2. Spurt á mannamáli. Spurningin er um uppsagnarfrest í þjónustusamningi. Svarið er „þrír mánuðir, skriflega“ og vísar í 12. grein samningsins, þar sem ákvæðið er merkt.
  3. Opinber gögn. Cervo sækir í fyrirtækjaskrá, ársreikninga, Hagstofu Íslands, vexti og gengi Seðlabankans, húsnæðisvísitölu HMS, Kauphöllina, opna reikninga ríkisins, opinber útboð, Hafrannsóknastofnun og skipulagsmál.
  4. Tengingar. Shopify, Klaviyo, Outlook og gögn úr Excel og CSV renna saman á einn stað og uppfærast sjálf.
  5. Greiningar. Spurt er um söluna. Kerfið reiknar töluna úr gögnunum og sýnir úr hve mörgum línum hún kemur.
  6. Verkefni. Cervo les fundargerð stjórnarfundar og leggur til verkefni. Það verður ekki til fyrr en smellt er á „Stofna verkefni“, og þá með ábyrgðaraðila og skiladegi.
  7. Yfirlit á morgnana. Á hverjum morgni sést hvað bíður og hvað breyttist, líka í tölvupósti.
  8. Claude og ChatGPT. Þekkingargrunnurinn er einnig aðgengilegur í Claude og ChatGPT, með sama aðgangi og í Cervo. Svörin byggja á sömu gögnum og vísa í sömu heimildir.

ChatGPT veit ekkert um fyrirtækið ykkar.

Starfsfólk er þegar farið að nota gervigreind, hvert í sínu horni og oft með gögn fyrirtækisins. Cervo gerir það að einni leið sem fyrirtækið á og stýrir.

Hrágögnin eru þar sem þau eru: í vefversluninni, bókhaldinu og skjölunum. Cervo sækir þau, gerir úr þeim skipulagða þekkingu með heimildum og ræður hver kemst að hverju. Vinnusvæðið, Claude og ChatGPT fara öll sömu leið.

ChatGPTEkki tengt

Hvaða vörum er mest skilað, og af hverju?

Ég sé ekki sölu- eða skilagögnin ykkar. Ef þú sendir mér lista yfir skil get ég greint þau.

Heimild
Engin
ChatGPTTengt Cervo

Hvaða vörum er mest skilað, og af hverju?

Strigaskóm í stærðum 38 og 39, 14% af sölunni. Í tölvupóstum segja flestir að þeir séu of litlir. Í öðrum stærðum er skilahlutfallið undir 3%.

ShopifyPósthólf
Heimild
Shopify, pósthólf

Dæmi til skýringar. Fyrra svarið er dæmigert fyrir ChatGPT sem er ekki tengt gögnum fyrirtækisins. Seinna svarið fæst þegar ChatGPT er tengt í gegnum Cervo, og það sama í vinnusvæðinu sjálfu.

Þekkingin safnast upp

Upplýsingar, ákvarðanir og reynsla eiga ekki að glatast þegar fólk skiptir um starf. Í Cervo safnast þekkingin saman, tengist öðrum upplýsingum og nýtist áfram. Þannig byggir fyrirtækið á því sem þegar hefur verið gert, í stað þess að byrja sífellt upp á nýtt.

Tengt ykkar kerfum

Cervo sækir í skjölin, fundargerðirnar, dagatalið og kerfin ykkar, sem almennt spjallmenni er ekki tengt.

Hvert svar vísar í heimild

Undir hverju svari stendur hvaðan það kom, niður í skjalið og dagsetninguna. Þið getið sannreynt það á staðnum í stað þess að treysta því.

Skrifar í ykkar rödd

Skýrslur, kynningar og markaðsefni koma út í ykkar sniði og ykkar orðalagi. Almennt spjallmenni skrifar allt í sinni eigin rödd.

Vinnur endurtekin verk sjálft

Cervo getur líka unnið endurtekin verk á tilsettum tíma, til dæmis greint það sem berst inn eða tekið saman skýrslur úr gögnunum. Verkin eru sett upp fyrir hvert fyrirtæki eftir því hvernig það vinnur. Almennt spjallmenni gerir ekkert fyrr en það er spurt.

Leiðin að sjálfvirkni í rekstri.

Flestir sjá bara síðasta skrefið. Það byggir á þeim sem eru á undan. Cervo tekur þau með ykkur og rekur þau áfram.

  1. 01

    Hvert í sínu horni

    Starfsfólk notar ChatGPT hvert fyrir sig. Þekkingin fer með fólkinu.

Flest eru hér

  1. 02

    Þekkingin á einum stað

    Skjöl, fundargerðir, ákvarðanir og gögn. Hvert svar vísar í heimild.

  2. 03

    Aðgangur og rekjanleiki

    Hver sér aðeins það sem hann má. Gervigreindin fær ákveðin verkfæri, ekki opinn aðgang.

  3. 04

    Tengt ykkar kerfum

    Vefverslun, bókhald, póstur og opinber gögn í sama svari.

  4. 05

    Sjálfvirk verk

    AI-agentar vinna endurtekin verk á tilsettum tíma, til dæmis vikulega samantekt, hvort sem einhver er við eða ekki.

Cervo setur upp og rekur

  1. 06

    Sjálfvirkur rekstur

    AI-agentarnir taka hver við af öðrum í heilum ferlum. Þeir sjá um handavinnuna, fólk um frávikin og stefnuna.

Markmiðið

Hvar gögnin eru geymd og hver hefur aðgang.

Gögnin eru geymd innan EES.

Í gagnaveri innan Evrópska efnahagssvæðisins, dulkóðuð í flutningi og geymslu. Hvert fyrirtæki fær sinn eigin gagnagrunn og sína eigin uppsetningu.

Gervigreindarvinnslan fer fram utan EES.

Gögnin eru geymd innan EES, en sjálf gervigreindarvinnslan fer fram hjá undirvinnsluaðila utan svæðisins.

Þau eru ekki notuð til þjálfunar.

Gögn fyrirtækisins eru ekki notuð til að þjálfa gervigreindarlíkön, hvorki hjá Cervo né þeim undirvinnsluaðilum sem við notum. Tengist starfsmaður í gegnum eigin Claude- eða ChatGPT-aðgang gilda skilmálar þess aðgangs.

Hver sér aðeins það sem hann má.

Gervigreindin virðir aðgangsheimildir, líka þegar notandi tengist í gegnum Claude eða ChatGPT.

Innleiðingin er unnin í áföngum.

Við kynnumst því hvernig þið vinnið og lögum Cervo að því, í stað þess að þið breytið vinnunni. Verkinu er skipt í afmarkaða áfanga, og þið prófið hvern þeirra í ykkar eigin vinnu áður en sá næsti tekur við.

01

Við kynnumst verklaginu

Fyrst förum við saman yfir hvernig vinnan gengur fyrir sig: hvað er skráð, hvar það býr og hver gerir hvað. Út úr því kemur verkáætlun með afmörkuðum áföngum.

02

Grunnurinn fer í gagnið

Cervo er sett upp og tengt við gögnin ykkar og þær opinberu gagnaveitur sem eiga við. Teymið getur byrjað að spyrja strax.

03

Aðlagað að verklaginu

Síður, töflur, sniðmát, tengingar og sjálfvirk verk eru sett upp í áföngum. Hver áfangi nýtist um leið og hann er afhentur.

04

Áfram í rekstri

Við rekum vinnusvæðið, sjáum um öryggi og uppfærslur og lögum það áfram til eftir því sem reksturinn breytist.

Spurt og svarað um gervigreind.

Hvað er Cervo?

Cervo er íslenskt vinnusvæði með gervigreind fyrir fyrirtæki. Kerfið sækir í gögn fyrirtækisins, skjöl, fundargerðir og rekstrarkerfi, og svarar spurningum á íslensku með tilvísun í þá heimild sem svarið byggir á. Grunnurinn er sá sami hjá öllum viðskiptavinum. Uppsetningin er svo löguð að hverju fyrirtæki fyrir sig.

Hvernig veit ég að tölurnar séu réttar?

Gervigreind getur sett fram ranga tölu jafn sannfærandi og rétta. Cervo reiknar því tölur úr undirliggjandi gögnum og ber þær saman við það sem kemur fram í svarinu. Þið sjáið hvaða tölur hafa verið sannreyndar, hvaða forsendur liggja að baki og hvað þarf að skoða betur. Hægt er að rekja niðurstöðurnar aftur í upprunalegar heimildir.

Hvað gerir Cervo íslenskt?

Ekki það að kerfið tali íslensku, það gera flest líkön í dag. Það sem skiptir máli er hverju það er tengt og hvernig það leitar: um fimmtíu opinberar íslenskar gagnaveitur ásamt ykkar eigin skjölum og kerfum, og leit sem ræður við íslenska beygingu.

Hvaða kerfi er hægt að tengja við?

Tengt í dag: Outlook, Shopify, Klaviyo, Meta og Sinna. Í smíðum: dk, Business Central og Bakvörður frá Advania. Önnur kerfi tengjum við eftir þörfum hvers fyrirtækis. Gögn úr Excel- og CSV-skrám má líka setja beint inn.

Hvað tekur langan tíma að koma þessu í gagnið?

Grunnurinn fer í gagnið fyrst, yfirleitt innan fárra daga: við kortleggjum hvar þekkingin býr, byggjum tengingarnar við kerfin ykkar og þær opinberu gagnaveitur sem eiga við, og stutt kynning dugar til að teymið geti byrjað að spyrja. Aðlögunin er svo unnin í áföngum eftir það, og hver áfangi nýtist um leið og hann er afhentur. Hve langt það ferli er ræðst af því hvað er smíðað. Við sjáum um rekstur, öryggi og uppfærslur.

Hvað kostar Cervo?

Við förum yfir kostnaðinn í kynningunni.

Segðu okkur hvernig þið vinnið.

Í stuttri kynningu sýnum við Cervo með raunverulegu dæmi og ræðum hvernig kerfið gæti nýst í ykkar daglegu vinnu. Við sleppum stöðluðu sölukynningunni.

Halldór Kárason, stofnandi Cervo

Í minni vinnu var ég sífellt að leita að upplýsingum sem ég vissi að væru til einhvers staðar. Skjöl, greiningar og gögn lágu dreifð um ólík kerfi, og mig vantaði betri leið til að halda utan um þetta allt. Fyrstu útgáfuna byggði ég því fyrir sjálfan mig.

Halldór Kárason, PhD, stofnandi

Um Cervo og af hverju kerfið varð til

Takk, beiðnin er komin til okkar. Við svörum í tölvupósti innan eins virks dags og finnum tíma sem hentar.

Fjöldi starfsmanna
Hvað viltu helst leysa? valfrjálst

Við svörum í tölvupósti innan eins virks dags og finnum tíma sem hentar. Við notum upplýsingarnar aðeins til að svara þér og undirbúa kynninguna. Nánar um persónuvernd.

Þú getur líka skrifað beint á halldor@cervo.is