Persónuvernd.
Hvaða persónuupplýsingum vefurinn safnar, til hvers, hverjir vinna með þær og hve lengi þær eru geymdar. Þessi síða á við um cervo.is. Um gögn sem fyrirtæki vista í Cervo gildir vinnslusamningur, sjá Öryggi og meðferð gagna.
Hver ber ábyrgð.
Cervo ehf., kt. 630222-0870, er ábyrgðaraðili þeirrar vinnslu sem fer fram á þessum vef. Fyrirspurnir og beiðnir um persónuvernd sendast á halldor@cervo.is.
Hvaða upplýsingum við söfnum.
Þegar þú bókar kynningu
Nafn, netfang, fyrirtæki og fjöldi starfsmanna, og ef þú kýst starfsheiti, hvað þú vilt helst leysa og skilaboð. Upplýsingarnar berast okkur í tölvupósti. Vefurinn sjálfur geymir þær ekki.
Þegar þú sendir okkur tölvupóst
Netfangið þitt og það sem stendur í póstinum.
Þegar þú skoðar vefinn
Við teljum heimsóknir með Vercel Web Analytics. Það notar ekki vafrakökur og fylgir þér ekki milli vefja. Vefþjónninn skráir tæknilegar upplýsingar, svo sem IP-tölu og tegund vafra, sem eru geymdar í skamman tíma vegna reksturs og öryggis. Vefurinn setur engar vafrakökur.
Til hvers, og á hvaða grundvelli.
Við notum upplýsingarnar til að svara þér, finna tíma og undirbúa kynninguna. Grundvöllurinn er að þú hefur beðið um þetta áður en samningur er gerður (b-liður 1. mgr. 6. gr. almennu persónuverndarreglugerðarinnar, GDPR) og lögmætir hagsmunir okkar af því að fylgja fyrirspurninni eftir (f-liður sömu málsgreinar).
Við setjum þig ekki á póstlista, seljum ekki upplýsingarnar og notum þær ekki til að þjálfa gervigreind.
Hverjir vinna með upplýsingarnar.
Vercel Inc. hýsir vefinn og tekur við bókuninni. Resend sendir hana til okkar í tölvupósti. Pósturinn er geymdur í Microsoft 365. Þessir aðilar vinna upplýsingarnar aðeins fyrir okkur, samkvæmt vinnslusamningi.
Vercel, Resend og Microsoft eru bandarísk fyrirtæki, svo upplýsingarnar geta farið út fyrir Evrópska efnahagssvæðið (EES). Sá flutningur byggir á EU–US Data Privacy Framework eða stöðluðum samningsskilmálum ESB.
Hve lengi.
Bókunum og tölvupósti sem leiða ekki til viðskipta eyðum við innan 12 mánaða. Ef fyrirtækið þitt verður viðskiptavinur gilda samningurinn og vinnslusamningurinn um það sem tekur við.
Réttindi þín.
Þú getur fengið að vita hvaða upplýsingar við höfum um þig og fengið afrit af þeim, fengið þær leiðréttar eða þeim eytt, og andmælt vinnslunni eða óskað eftir að hún verði takmörkuð. Sendu beiðni á halldor@cervo.is og við svörum innan mánaðar.
Ef þú telur að við förum ekki rétt með upplýsingarnar getur þú kvartað til Persónuverndar.
Síðast uppfært 23. október 2026. Breytist þessi síða breytum við dagsetningunni.